Heim/Home
Skrímslasetrið opnar í Maí
fjorulalli-apr-013

Nú hafinn er undirbúningur að opnun Skrímslasetursins fyrir sumarið. Að þessu sinni verður opnað fyrr en vanarlega eða 1. maí og opið til loka september. Einnig verður opnunartími lengdur. Í maí verður opið frá kl. 10:00 - 22:00, júní, júlí og ágúst frá kl. 9:00 - 22.00 og september frá kl. 9:00 - 22:00.
Sýningin tekur stöðugum breytingum og fyrir opnun síðasta sumar var t.d. fjörulalla í fullri stærð komið fyrir í setrinu og vakti hann mikla athygli og pínulítinn ótta hjá sumum, enda er hér um skrímsli að ræða.
Eaglefjord verður rekstraraðili Skrímslasetursins í sumar og verður framboð á veitingum aukið til muna með t.d. heitum máltíðum og fleira góðgæti. Einnig mun Eaglefjord bjóða upp á siglingar um Arnarfjörðinn. Nánari upplýsingar um þjónustu Eaglefjord má finna á www.eaglefjord.is

Verð aðgöngumiða er eftirfarandi:
Fullorðnir: 1.000 kr.
0-6 ára: 0 kr.
7-15 ára 500 kr.
67+ 900 kr.
 
« FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta »

Síða 1 af 10
Borði