| Arnarfjörður |
|
Arnarfjörður er annar stærsti fjörðurinn á Vestfjörðum um 30 km langur inn í botn Dynjandisvogs, 5 til 10 km breiður. Í innfjörðum Arnarfjarðar er víða mikil veðursæld þar sem þeir eru umkringdir háum fjöllum og eru þeir víða vaxnir birkikjarri. Eina kauptúnið við fjörðinn er Bíldudalur sem stendur við Bíldudalsvog og er rómaður fyrir veðurblíðu. Hann á sér langa og merkilega sögu sem verslunar- og útgerðarstaður. Helstu athafnamenn þeirrar sögu voru Ólafur Thorlacius og síðar Pétur J. Thorsteinsson. Hinn kunni listamaður, Guðmundur Thorsteinsson, Muggur, var sonur Péturs. Ásamt Skrímslasetrinu eru á Bíldudal ferðaþjónustufyrirtækið Eagle Fjord, Farfuglaheimilið Bíldudal, golfvöllur, tjaldstæði, tónlistarsafnið Melodíur minninganna, íþróttamiðstöð (íþróttasalur, heitur pottur og gufubað) og veitingahúsið Vegamót.
Útvörður Arnarfjarðar að sunnanverðu er Kópanes þar sem finna má elsta berg landsins. Í Selárdal bjó Samúel Jónsson, listamaðurinn með barnshjartað, og standa mörg verka hans enn uppi enda hafa hópar sjálfboðaliða unnið að endurreisn og viðgerðum á þeim. Í Selárdal bjó einnig Gísli Gíslason á Uppsölum og stendur bær hans opinn gestum. Margir merkir prestar hafa setið í Selárdal en frægastur er þó Páll Björnsson (1621-1706) fyrir galdrabrennur sínar þar sem fimm (sumir segja sex) manns týndu lífinu. Við miðbik Ketildalanna er Hringsdalur. Þar fannst vel varðveitt kuml árið 2006 sem talið er vera grafreitur Hrings landnámsmanns frá 10. öld. Í mörgum Ketildalanna eru fagrar gular sandstrendur og er Hvestusandur tilkomumest þeirra. Í Arnarfirði innan við Bíldudal eru Suðurfirðir þar sem ýmislegt markvert má sjá og upplifa. Í Dufansdalsnúpnum er gömul surtarbrandsnáma sem merkt er með skilti við þjóðveginn. Í Fossfirði er fagur foss sem fellur fram af hamrabrún skammt frá veginum og mikið kríuvarp er á sama svæði sem skemmtilegt er að sjá í návígi, öruggur í bílnum. Í Reykjafirði er jarðhiti og þar er laug sem er opin almenningi en þó án þjónustu. Ef áfram er haldið fyrir botn Arnarfjarðar er komið að Geirþjófsfirði sem er þekktastur fyrir að vera vettvangur Gísla sögu Súrssonar. Í dag er fjörðurinn í eyði en niður í hann er hægt að ganga frá þjóðveginum. Einnig er siglt þangað frá Bíldudal með ferðaþjónustunni Eagle Fjord. Dynjandisfoss er skammt undan en hann er rómaður fyrir fegurð sína þar sem hann fellur á stöllum niður eftir fjallshlíðinni. Auðvelt er að ganga upp með honum og njóta útsýnis yfir fjörðinn. Þegar áfram er haldið er ekið fram hjá Mjólkárvirkjun að Hrafnseyri en þar er safn um óskabarn Íslands, Jón Sigurðsson, sem fæddist 17. júní árið 1811. Frá Hrafnseyri liggur leiðin yfir Hrafnseyrarheiði til Þingeyrar en ef haldið er út með Arnarfirði er komið að Fossdal. Yfir honum trónir hæsta fjall Vestfjarða, Kaldbakur (998 m) en frá tindi þessa forna eldfjalls er stórkostlegt útsýni. Ef áfram er haldið er hægt að aka svonefnda Kjaransbraut fyrir Sléttanes og inn með Dýrafirði en vert er að athuga færð áður en lagt er af stað. Á þeirri leið eru Lokinhamrar þar sem Guðmundur Hagalín, skáld, fæddist og ólst upp.
Arnarfjörður, heimkynni sjávarskrímsla, er náttúruperla sem allir ættu að skoða á ferðalagi um Vestfirði. Arnarfjörður er – öðruvísi Ísland! |

Arnarfjörður
