|
Bátur strandar á skrímsli |
|
Árið 1915 var gerður út frá Kirkjubóli í Fífustaðadal sexæringur, sem hét Heppinn. Formaður var Benedikt Kristjánsson, sem lengi var hreppstjóri í Ketildölum.

Þeir voru á leið í land úr róðri í logni og fögru veðri er báturinn stöðvaðist skyndilega og virtist sem strandaður þó frammi í miðjum sjó væri. Hann stóð þá á baki á einhverju sem virtist vera risadýr eða óþekkt kvikindi sem vaxið var stóru faxi er flaksaðist öðru hverju upp úr sjónum. Hrefna kom þá aðvífandi meðfram bátshliðinni og fór hún svo nærri, að næstum því hafði hún brotið fyrir þeim árarnar. Hrefnan kaffærði dýr þetta svo að báturinn flaut af því og skipverjar náðu að róa í land heilu og höldnu. Myndskr. MÓ.
|