|
Bátur strandar á skrímsli |
|
Árið 1915 var gerður út frá Kirkjubóli í Fífustaðadal sexæringur, sem hét Heppinn. Formaður var Benedikt Kristjánsson, sem lengi var hreppstjóri í Ketildölum.
|
|
Nánar...
|
|

Maður nokkur er reið heim frá Otradalskirkju inn með sjónum seint að kvöldi hleypti hesti sínum í ógáti ofan á skrímsli, sem lá í fjörunni. Það brást hart við, hljóp aftan á hestinn og reif hann til skaða. Einnig tætti það bak mannsins með klónum og voru rifurnar þrjár og þrjár saman. Skrímslið hvarf loks frá manninum í túnjaðrinum. Lá maðurinn í sárum lengi á eftir, en hestinn varð að aflífa. Myndskr. MÓ. |
|
|
|
|